heimur Elvu
15.03.2008 01:44:47 / elva

Litli prinsinn komin

Jæja þá er krílið okkar komið í heiminn hann kom 28 febrúar eftir langa og stranga bið.. Mar hefur ekkert haft tíma til að blogga alltaf að hugsa um dúlluna :haha:
Hann rosalega góður og vær ekkert vesen á honum :lol: okkur heilsast rosa vel
ég og Kristján sjáum ekki sólina fyrir honum erum alveg yfir okkur ástfangin af lilta kallinum :haha:

Við erum búin að áhveða hvenar hann verður skírður og það verður 6apríl
og ykkur sem er boðið þið fáið boðskort ;)

En jæja nú er komin tími til að fara að sofa

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 21:36:18 / elva

hættir við

 

vuhú það er komið í ljós að það er hætt við að senda þá norður að bora

og get sagt ykkur það að ég er ekkert smá fegin :D

ég vildi líka segja ykkur að það er komin síða fyrir lilla bumbustrákinn :haha:

lillielvuogkristjans.barnaland.is


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 12:43:49 / elva

Ein og yfirgefin

 

Smá þunglindi í gangi Kristján var að segja mér að hann þarf að fara að bora fyrir norðan

og verði alveg í mánuð eða lengur... :$

Þannig að ég verð bara ein á afmælinu mínu og hann verður kanski ekki

hjá mér þegar ég á að eiga þarf að gera það ein. Mér fynst þetta frekar ósangjarnt

er ekki bara hægt að senda einhvern annan og það er verið að senda hann í burtu

þegar ég þarf mest á honum að halda :^)

Er frekar brjáluð núna....


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 18:57:37 / elva

halló

 

Jæja nú er komið nýtt ár 2008 ég og Kristján búin að vera saman í 2 ár

og það stitist alltaf í lillan okkar...  Okkar hlakkar ekkert smá til

við erum farin að fynna svo mikið fyrir honum mar getur alveg fundið hausinn og tásurnar..

Jólin voru geggjað kósí við vorum á aðfangadag hjá tengdó og þar var pakkaflóð ekkert smá

mikið að pökkum.. Kristján minn gaf mér bestu gjöf í heimi hann gaf mér gjafabréf í meca spa

heilnudd fótsnyrting og luxus andlitsbað... Bara snild ég ætla að nota þetta áður en

ég á afmæli sem er 30 janúar :)

Lillinn okkar fekk fullt af pökkum geggjað krúttlegt :haha:

Mamma og pabbi gáfu okkur það sama og tengdó vöfflujárn :lol: þannig að ég ætti að geta

bakað vöfflur núna..

Pabbi hans Kristjáns gaf okkur líka geggjaða gjöf sem kemur sér að góðum notum :D

Á jóladag fórum við til mömmu og pabba í hangikjöt nammmm ég elska jólamat :)

Á áramótonum vorum við með mömmu og pabba hjá bróðir hans pabba og það var geggjað

gaman við vorum svo mörg :) mér fanst skaupið gotten eldra fólkið er ekki sammála

það fattaði engin þetta með flugvélina :D

við fórum svo heim um 1 og það komu nokkrir til okkar svo fóru allir á djammið og ég var

bara heima og horfði á sjónvarpið og fór að sofa um 4

Þannig að við höfðum það mjög gott yfir hátíðarnar.. Núna bíðum við bara eftir lilla :)

En gleðileg jól elskurnar og farsælt komandi ár sem er komið :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 08:21:22 / elva

góðan daginn

 

Jæja það er orðið langt síðan ég bloggaði talvan hjá okkur hrundi hún er bara drasl þannig að við ætlum bara að fara skoða nýjar tölvur :lol:

Það gengur allt vel hjá okkur við fórum í sónar 16 okt og fengum að sjá krílið okkur ohh hann er svo sætur..... já mikið rétt þetta er lítill prins :D og þið hefðuð átt að sjá svipinn á Kristjáni hann var svo stoltur ég vildi að ég hefði verið með myndavél til að taka myndir af honum hann var svo stoltur ég hef aldrei séð hann svona stoltan :haha:

kúlan er orðin svo stór hún stækkar með hverjum deginum :lol:

Ég keypti föndur um daginn sem heitir skrapp það er svona albúm sem mar getur límt myndir inn í og allskonar skarut svaka spennó ætla að gera svona albúm fyri strákinn minn svo fer ég bráðum að búa til síðu á barnaland fyrir lilla :)

Og Junior komin með nafn það er rosalgega fallegt KRISTINN ARNAR :haha:

En ég blogga meira seinna bæó


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 19:35:09 / elva

blessaður meistari

 

Jæja ein ekki alveg að standa sig í að blogga ég er búin að vera ekkað

svo þreytt alltaf sofandi :o en allt gengur rosa vel bumbubúinn

farin að leifa mömmu sinni að finna fyrir sér :haha: greyið Kristján minn er að verða

alveg brálaður honum langar svo að finna hreifingu hann er svo mikið yndi

hann er alveg að standa sig allta að dekra við mig og nuddar mig á hverju kvöldi og

hnikkir mig :) svo er hann alltaf að taka til eða vaska upp ógislega duglegur

ég er komin 16 vikur á leið og er komin með ágætis kúlu allt kom vel út

í hnakkarþyktamælingunni úf þetta var langt orð ;) og öll ógleði er farin

sem er alveg heavy næs allt annað en þessi ógleði.

 

En eruði búin að sjá nýju síma auglýsinguna vá hún er svo fyndin "blessaður meistari"

"við erum hér hvar ert þú" "uhh er búið að segja gjörið svo vel" hahahaha

þetta er snild bara fyndið en talandi um auglýsingar það er ein auglýsing sem er

ógeðslega fyndinn einn gaurinn segir "hva er ekkert á milli eyrnanna þinna drengur"

þá segir hinn "uhhhh jú umþabil 13 sentimetrar" hahahahah

þetta er kanski bara fyndið þegar mar sér hana en jæja ég ætla að fara hætta

þessu er farin að tala um auglýsingar :haha:

 

see ya ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 17:25:12 / elva

hæhó

 

Helló það er orðið frekar langt síðan ég bloggaði seinast 8|

En það sem er að fretta er að ég er byrjuð í nýju vinnunni sem er gjaldkeri hjá glitni mjög spennandi starf og erfitt ég héllt alltaf að vera gjadkeri væri geggjað létt en nei þetta er frekar flókið en það er allt í lagi ég er svo klár 8)

Og svo er bara gleði gleði ég er hætt að reykja og þið ykkar sem þekkið mig vel ættuð að vita hvað það þýðir :D.......????? !!!!!   hhhmmmmm

Já það er rétt kellingin er ólétt :haha: ég og Kristján erum í skýjonum mjög ánægð með þetta :D og guð minn góður morgunógleði á há stigi alveg ógeðslegt morgunógleði ég meina allan sólahringinn ógleði en það eru bara 3 vikur eftir af þessari ógleði þá get ég farið að anda léttar... það tekur öruglega ekkað við af ógleðinni veit ekki en fyrsta skoðun er 13 ágúst og ég læt ykkur vita hvernig það gengur :haha:

 

bless í bil


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 22:56:11 / elva

Lítill prins :)

 

Ég vil tileinka þetta blogg til Sigfríðar og Jogg

Þau eignuðust lítinn prins núna í kvöld bara verið ð drífa sig að þessu

allt gekk vel hjá þeim og núna eru þau bara orðin geggjað fullorðin:D

Litli prinsinn var 14 merkur og 49cm :haha: 

 

Ég óska ykkur innilega til hamingju með litla krílið  ;)  


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 19:21:08 / elva

Trúlofuð

 

 

Halló allir saman það nýjasta sem er búið að gerast hjá mér er að hann Kristján minn fór á 

skjeljarnar og bað mín ógó sætur og við erum trúlofuð ég er orðin ekkað svo fullorðin :haha: 

En í gær var pjölluhitingur og það var geggjað gaman hjá okkur reyndar beilaði Viktoría sem er allt í lagi í þetta eina skipti :P Auður klipti Sigfríð sætu sem er alveg að fara að eiga sem er næstu helgi og ég var fyrir rosalegri lífsreinslu sko þegar ég hef verið að koma við óléttubumbu þá hefur krakkinn aldrei sparkað eða hreift sig þannig að ég finni það en í gær vá litli bumbukall sparkaði sko og hreifði sig fyrir mig mér fanst það geðveikt þetta var ekkert smá magnað ég var að missa mig yfir þessu sko :D svo kíkti kolla til okkar það var fjör :) ég vil þakka ykkur fyrir frábært kvöld það var geggjað gaman hjá okkur ;)

 

Svo seinasta fimmtudag fór ég og Auður á glaumbar að sirgja svart klæddar eða ég var í svörtum

buxum en Auður öll svart klædd og við reyktum okkur í hel það ver geggjað stuð hjá okkur 8) 

 

En það er komin ný síða í safnið sem við pjöllurnar erum með 

ég Auður Sigfríð og Viktoría 

tjékkið á henni

 http://blog.central.is/a-list-pjollur  


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 15:14:58 / elva

hæ hæ

 

Helló hvað segir fólkið þá :D ég er á fullu í nöglonum og það er ógeðslega gaman :)

Seinustu dagar eru ekki búnir að vera skemmtilegir ég er búin að vera lasin með síkingu í andlitinu og barkabólgu frekar ógeðslegt ég held að ég hafi aldrei verið á svona mörgum lyfjum í einu ég er á síklalyfjum með púst og eitthvað síkladrepandi sprei í nebbann og fór í sjúkrabíl á miðvikudaginn allt að gerast...

En endilega hringja ef ykkur vantar neglur 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 23:11:30 / elva

Wazzz up

 

jæja stelpur ef ykkur vantar neglur þá ég farin að gera gelneglur og tek 3500 fyrir þannig að ef ykkur vantar neglur þá hringið þið bara :)

 

En útí allt annað ég og Kristján minn fórum um daginn í bíó á Mýrinna og vá þetta er snildar mynd ekkert smá góð ég er ekki búin að lesa bókina en ég fekk lánaðar 5 bækur hjá mömu eftir Arnald Indiðason og þar á meðal Mýrina og nú ætla ég sko að fara að lesa :lol:

En ég var áðan í bíó eð Inga Sævari og konunni hanns og við fórum á Blades of glory og þessi mynd er geggjað fyndin ég var í kasti mest alla myndina :haha:

 

Stelpur endilega hringið ef ykkur vantar neglur ég er geggjað klár :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 23:40:51 / elva

Fátækt

 

Hellú allir saman ykkur fynst þetta kanski væmið blogg en mér er sama ég verð að koma þessu frá mér.

Ég var að horfa á american idol og það var verið að fjalla um fátækt í heimin þetta er rosalegt í afríku deyr barn á 30sek fresti mér fynst það ótrúlega sorglegt ég var næstum því farin að gráta. í bandaríkjonum er geggjuð fátækt og fólk á heima á götunni og meira að segja hér á íslandi. Hugsið ykkur hvað við erum ótrúlega hepinn að hafa skjól yfir höfðinu og föt og nóg af mat og getum farið í skóla og lært það sem okkur langar til. Þið getið haldið uppi barni útí afríku með því að gefa þúsund kall og það er nóg til að barnið getið fengið föt mat lyf og farið í skóla hugsið ykkur þúsund kall ef allir íslendingar gæfu þúsund kall á ánuði þá smátt og sátt myndi fátæktinni minka þúsund kall fyrir eitt barn 5000 fyrir 5 börn við getum þetta ég hef trú á ykkur ég ætla að byrja að gefa peninga og ég skora á ykkur öll að gera það sama. Hugsið ykkur hvað manni líður vel þegar mar sér hvað mar hefur gert með því að gefa peninga slepið að fara á djammið eina helgi eða fara í bíó og gefið frekar peninginn....

Ekki bara lesa þetta og kinka kolli rosalega sammála geru eitthvað og hugsið ykkur hvað þið eruð ótrúlega hepin bara það að fá að vakna á hverjum degi heilbrigð/ur og geta valið sér hvað mar á að fá sér að borða...


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 13:51:22 / elva

Hellú

 

Jæja góðan daginn gott fólk hvað segið þið þá :)

páskarnir voru geggjað kósý ég var að vinna á fimmtudeginum en svo um kvöldið þá kom óli vignir og hjölli í mat til okkar og við borðuðum rosa góðan mat að hætti Elvu 8) svo seinna um kvöldið þá komu gunni aggi haukur og addi og þá heimtaði ég stelpur á svæðið var ekki alveg nógu sátt að hafa bara stráka :D þannig að ég dró hana Viktoríu til okkar og hún Auður kom líka og það var geggjað gaman hjá okkur.

 

svo voru restin af páskonum bara rólegir hjá okkur við erum orðin svo gömu að við höngum bara 2 saman í kotinu okkar :P

 

En það nýjasta er að stelpan er að fara skella sér í naglaskóla svo í framtíðinni opna ég kanski stofu en ef það verður ekkað úr því þá verður það ekki nærrum því strax. Þanig að þegar ég er búin að læra þá er eins gott að þið stúlkur komið til mín í neglur 8)

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 12:47:51 / elva

Lasin :(

 

Jæja komin tími á smá blogg ég er ekki alveg nógu dugleg í þessu :lol:

Ég er búin að vera lasin síðan á þriðjudaginn mér leiðist geggjað mikið og ég er orðin ógislega þreytt á að hósta ég er alveg komin með harðsperur :D En ég og Kristján ákváðum að breyta aðeins til í matarræðinu hjá okkur við ætlum að hætta að éta þetta hellvítis nammi og drekka kók bara slæmt fyrir mann nú er það bara appelsínusafi fiskur grænmeti og ávextir ekkert nema hollusta takk fyrir :haha:

En halló þið sem kallið ykkur vini mína meigið alveg fara að kíkja á okkur í íbúðina okkar við erum búin að gera hann geggjað kósí :P

en ég nenni ekki að skrifa meir verð að fara að vaska upp ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 10:46:17 / elva

NÝJA ÍBÚÐIN :)

Jæja við erum flutt í íbúðina okkar og vorum að fá netið :) þetta er geðveikt ógislega kósý :D við máluðum allt uppá nýtt og við erum hevy ánægð hérna ég vildi bara láta vita að ég væri lifandi 8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 28130
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012